Tónleikar Trúbatrix dagana 13.-15. maí

12. May, 2010
By Vefstjóri
Tónleikar Trúbatrix dagana 13.-15. maí

Trúbatrix verður með tónleika í Londona og Brighton dagana 13.-15. maí! 13. maí: Troy Bar í Hoxton London (á sviði kl. 20:00). 10 Hoxton Street Shoreditch, London N1 6NG. Aðgangseyrir: £4  -  http://www.wegottickets.com/event/80412 14. maí: Great Escape Festival á  Northern Lights Bar – Brighton (frá kl. 14:00 – 17:00 ) 6 Little East Street...
Read more »

Messur í Grimsby og London helgina 15.-16. maí

12. May, 2010
By Vefstjóri
Messur í Grimsby og London helgina 15.-16. maí

Þann 15. maí næstkomandi kl. 14:00 verður messa í St James kirkju, St James Square, DI31 1EP  Grimsby. Svo gleðilega vill til að einnig verður ung stúlka, Victoria Cleland, fermd við þá athöfn. Góður hópur söngvara úr Íslenska kórnum taka þátt í messunni undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. „Freyjurnar“...
Read more »

Hádegistónleikar í Foundling Museum 19. maí

12. May, 2010
By Vefstjóri

Þrjár ungar íslenskar tónlistarkonur, Matthildur Anna Gísladóttir, píanóleikari, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari og Guðbjörg Sandholt, mezzósópran, koma fram á tónleikum í Foundling Museum miðvikudaginn 19. maí  klukkan 13:00 og er aðgangseyrir £5 (innifalið er aðgangur að safni). Flutt verða verk eftir J.S. Bach, Henry Purcell, W.A. Mozart og Jórunni Viðar. Skemmtilegt kaffihús er á staðnum þar...
Read more »

Tónleikar Íslenska kórsins í London 23. maí

12. May, 2010
By Vefstjóri

Sunnudaginn 23. maí næstkomandi n.k. mun Íslenski kórinn i London halda tónleika ásamt einsöngvurum. Tónleikarnir fara fram í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG, og hefjast kl. 17:00. Skemmtileg dagskrá med tónlist úr öllum áttum. Aðgangur ókeypis en frjáls framlög vel þegin! The Icelandic Choir in concert The Icelandic Choir in London...
Read more »

Sumarbasar dönsku kirkjunnar 14. og 15. maí

12. May, 2010
By Vefstjóri
Sumarbasar dönsku kirkjunnar 14. og 15. maí

Danska kirkjan verður með sumarbasar dagana 14. og 15. maí næstkomandi. Til sölu verður danskur matur, handverk og hönnun, bækur og margt fleira. Veitingastaður er á staðnum og verður skemmtun í boði fyrir börn. Aðgangseyrir er £1 fyrir fullorðna og ókeypis fyrir börn. Danska kirkjan er á 4 St. Katharine’s Precinct,  Regent’s Park NW1...
Read more »

Atvinna í boði

12. May, 2010
By Vefstjóri

CCP hf. á Íslandi auglýsir stöðu  „Corporate Controller“ í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á http://www.ccpgames.com/en/jobs/job-detail. Einnig má hafa samband við Karrin Nicol, sími: +44 7989 533 427, netfang: Karrin.nicol@asaripartners.com.
Read more »