Um félagið
Stjórn og nefndir 2011-2012
Á aðalfundi félagsins þann 30. september 2012 var kosin algjörlega ný stjórn fyrir félagið. Ný stjórn er skipuð sem hér segir:
· Sesselía Ólafsdóttir, formaður (formadur hja ifelag.co.uk)
· Nanna Guðmundsdóttir, gjaldkeri (gjaldkeri hja ifelag.co.uk)
· Aðalbjörg Sigurðardóttir, vefstjóri (vefstjori hja ifelag.co.uk)
· Steina Adolfsdóttir og Þorgeir Freyr Sveinsson, ritarar (ritari hjá ifelag.co.uk)
· Guðný Jónasdóttir, meðstjórnandi (medstjornandi hjá ifelag.co.uk)
Nýir meðlimir þakka þeim sem á undan sátu fyrir störf í þágu félagsins og óska þeim velfarnaðar í komandi verkefnum. Íslendingar vítt og breitt um landið eru hvattir til að setja sig í samband við nýja stjórn vilji þeir hafa áhrif á störf og viðburði félagsins.
Félagsaðild
Aðild að Félagi Íslendinga í London er gjaldfrjáls og án skuldbindinga (skv. ákvörðun aðalfundar sem var haldinn í september 2004). Ekki er þörf á að skrá sig til að gerast meðlimur í félaginu.
Félagið heldur úti heimasíðu, síðu á Facebook og sendir reglulega út tilkynningar og fréttir um félagsstörf og hvað annað sem tengist Íslandi og íslendingum hér ytra á tölvupósti. Skráning á póstlistann er hægra megin á heimasíðu félagsins. Hver sem er getur smellt á “like” á Facebook síðu félagsins og þannig fylgst með uppfærslum og fréttum. Einnig er hægt að hafa samband við félagið á info @ ifelag.co.uk eða með pósti á einstaka stjórnarmeðlimi.

