Starfsemi félagsins
Íslendingar vítt og breitt um landið eru hvattir til að setja sig í samband við stjórnina vilji þeir hafa áhrif á störf og viðburði félagsins eða fá upplýsingar á info hjá ifelag.co.uk
Starfsemi Félags Íslendinga í London hefur breyst þó nokkuð síðan hún hófst en kjarni hennar er enþá sami: að hóa Íslendingum saman og eiga góða og eftirminnilega stund.
Önnur starfsemi felst ma.a í því:
- Að standa fyrir íslenska skólanum með styrk frá menntamálaráðuneytinu. Skólinn er ekki starfandi veturinn 2012-2013.
- Miðlun upplýsinga til Íslendinga um þá þjónustu sem stendur þeim til boða m.a í sendiráði Íslands og viðburði í London sem koma Íslendingum við. Þessi partur félagsins birtist aðallega í formi heimasíðunnar, Facebook síðu félagsins og póstlista félagsins.
- Félagslegur stuðningur við nýflutta Íslendinga til að þeir eigi auðveldara með að fóta sig í nýju samfélagi með viðburðum og tengslaneti félagsins.
Félag Íslendinga í London stendur fyrir þó nokkrum viðburðum árlega. Þeir helstu eru:
- Þorrablót.
- Páskabingó, haldið rétt fyrir páska
- Eurovisionpartý
- Þjóðhátíðarskemmtun, haldin á sunnudegi öðru hvoru megin við 17. júní
- Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ í Hyde Park í júní
- Fullveldishátíð, haldin í kringum 1. desember
- Jólaball, með íslenskum jólasveinum auk hins hefðbundna dans í kringum jólatréð.
Einnig eru haldnir minni viðburðir eins og t.d. öskudagsskemmtun, Dagur íslenskrar tungu, kosningavökur, barsvar og sameiginlegt áhorf á íþróttaviðburði.
Endilega skráið ykkur á póstlistann til þess að fá tilkynningar um viðburði og annað sem er á dagskrá.
em
/p

