Íslenskur matur
Bragð að heiman
Félagið selur oft íslenskt nammi á viðburðum en einnig er hægt að finna ýmislegt sem minnir á Ísland og íslenska og norræna menningu víðsvegar um London.
Matur
Í verslunum IKEA er oft hægt að finna rauðkál, smurost og síld svo eitthvað sé nefnt. Stundum eru fáanlegar frosnar pylsur sem eru eins nálægt SS pylsum í bragði og áferð eins og hægt er að komast án þess að vera SS.
Eingöngu vörur framleiddar í Svíþjóð (og Finnlandi), t.d. pakkasósur, rauðbeðusalat, matarsóda, sýrðar gúrkur, kjötbúðing, Abba fiskibollur, Gevalia kaffi, gravlaxsósu, Maríu kex, Gaffalbita, lifrakæfu, kartöflumjöl, flórsykur, remúlaði, rækjusalat, sinnep, saltlakkrís, Tyrknenskur pipar, Läkerol og jólaglögg svo eitthvað sé nefnt.
Veitingastaður og verslun með matvöru frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og skyr framleitt í Danmörku eftir íslenskri uppskrift. Mysuostur, pakkasósur, hrökkbrauð, graflax og sósa, kavíar, pylsur, ostar, sultur, saltlakkrís, jólabjór ofl ofl.
Vefverslun sem selur gríðarlegt úrval af íslenskum matvælum, hönnun, snyrtivörum ofl. Vörur eru sendar út um allan heim, annað hvort með hefðbundnum bögglapósti eða hraðþjónustu.
Nammibúð í eigu sænskra systra, þú velur sjálfur í poka; fílakarmellur, piparbrjóstsykur, súrt hlaup, salt lakkrís og Läkerol ofl.
Norrænir veitingastaðir í London
Michelin stjörnu veitingastaður Agnars Sverrissonar og Xavier Rousset, ber meðal annars fram skyr og íslenskan fisk
34 Portman Street London W1H 7BY Tel: +44 (0) 20 7224 0028
Hér er hægt að nálgast rauðbeður, mysuost, síld og remúlaði svo eitthvað sé nefnt. Ásamt því sem hægt er að fá sér léttan mat
61 Great Titchfield Street, W1W 7PP Tel: +44 (0) 20 7580 7161
Smurt brauð, sænskar kjörbollur og norrænar pylsur með kartöflumús. Íslenskur bjór frá Einstök.
25 Newman Street, London W1T 1PN Tel: +44 (0) 20 7631 3174
Smurt brauð, grænlenskar rækjur og bjór frá Norðurlöndunum ásamt Frikadeller og kransaköku er meðal þess sem er á boðstólnum
20 Old Brompton Road London SW7 3DL tel: +44 (0) 20 7225 2772
Bestu borgararnir í bænum, og heyrst hefur að þeir séu jafnvel betri hér í London en heima á Fróni.
58 Marylebone Lane, London, W1U 2NX
Tel: 0207 935 5275
Cheerios og aðrar amerískar vörur
Hér er hægt að kaupa venjulegt Cheerios.
Rosslyn Hill Deli – í Belsize Park milli Belsize Park Tube Station og Hampstead Tube Station. Hægt er að finna vörurnar aftast í búðinni
The Rosslyn Delicatessen
56 Rosslyn Hill
Hampstead
London
NW3 1ND
13-19 Circus Road
St John’s Wood
NW8 6PB
Russell Parade
Golders Green Road
Golders Green
London NW11
Amazon.co.uk selur núna matvörur, þar á meðal Cheerios og annað morgunkorn frá Bandaríkjunum.

