Íslenski kórinn
Íslenski kórinn í London er opinn öllum söngelskum Íslendingum og Íslandsvinum og þáttaka er gjaldfrjáls! Kórinn æfir öll þriðjudagskvöld milli 19:00 og 21:00 í sendiráði Íslands, 2a Hans Street, London SW1X 0JE – sjá kort. Næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square. Að loknum léttum kóræfingum fara fram stífar bjóræfingar á nærliggjandi öldurhúsi.
Kórinn leiðir alla jafna sönginn í messum íslenska safnaðarins, syngur við nokkra viðburði Íslendingafélagsins auk þess að heimsækja árlega Hull og Grimsby. Þá tekur kórinn þátt í kóramótum erlendis með reglulegu millibili.
Taka skal fram að leit kórsins að meðlimum er eilíf sökum þess hve örir búsetuflutningar Íslendinga í London og nágrenni geta verið. Einkum leitun að góðum karlaröddum til að halda kvenröddunum, sem meira framboð er af, félagsskap! Engin skilyrði eru sett fyrir þátttöku í starfi kórsins, önnur en almenn lagvísi – en engin inntökupróf eru haldin. Stingdu inn hausnum það þriðjudagskvöld sem þér hentar til að hefja þátttöku!
Kórstjóri íslenska kórsins er Helgi Rafn Ingvarsson.

