Lög félagsins
Reglur Félags Íslendinga í London
1. kafli HEITI FÉLAGSINS OG TILGANGUR
1. grein:
Heiti félagsins er FÉLAG ÍSLENDINGA Í LONDON.
2. grein:
Lögheimili félagsins skal vera í London eða nágrenni.
3. grein:
Tilgangur félagsins:
a. Að auka og efla viðkynningu Íslendinga í Stóra-Bretlandi og annarra félagsmanna.
b. Að viðhalda og treysta á tengsl við Ísland.
c. Að stuðla að aukinni þekkingu félagsmanna á Bretum og Stóra-Bretlandi.
4. grein:
Félag Íslendinga á Bretlandseyjum tekur ekki undir neinum kringumstæðum afstöðu eða samþykkir ályktanir um stjórnmál á Íslandi eða Bretlandseyjum eða annars staðar.
2. kafli UM FÉLAGSMENN
5. grein:
Félagsmenn geta orðið allir þeir sem eru búsettir eða dvelja á Bretlandseyjum.
6.grein:
Árleg félagsgjöld eru engin. Stjórn félagsins skal leitast við að veita félagsmönnum hlunnindi, svo sem forgang til aðgöngu og afslátt af aðgangseyri á skemmtunum félagsins.
3. kafli FÉLAGSFUNDIR
7. grein:
Lögmætir félagsfundir hafa æðsta vald í málefnum félagsins. Til þess að félagsfundir séu löglegir, skulu þeir vera sóttir af minnst 10 fullgildum félagsmönnum og löglega skal til fundarins boðað.
8.grein:
Rétt til setu á félagsfundum hafa allir félagsmenn.
9. grein:
Til félagsfunda skal boðað með minnst 14 daga fyrirvara og tilefni fundarins getið í fundarboði.
10. grein:
Aðalfundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar félagsins árlega.
11. grein:
Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin fyrir og í þeirri röð sem nú segir:
a. Kosning fundarstjóra.
b. Ritari les fundargerð síðasta aðalfundar.
c. Formaður skýrir frá framkvæmdum félagsins á liðnu ári.
d. Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnarinnar.
e. Gjaldkeri les ársreikninga félagsins með athugasemdum endurskoðenda.
f. Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu gjaldkera.
g. Reglubreytingar.
h. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda. Skal kosið sérstaklega um hvern stjórnarmann. Afl atkvæða ræður.
i. Önnur mál.
12. grein:
Aðra félagsfundi skal halda:
a. Ef störfum aðalfundar tekst ekki að ljúka.
b. Ef meirihluti stjórnarinnar samþykkir.
c. Ef 1/3 lögmætra félagsmanna senda bréflega ósk um félagsfund og greina frá tilefni. Skal þá boða til félagsfundar innan 14 daga.
4. kafli STJÓRN FÉLAGSINS
13. grein:
Stjórn félagsins er skipuð 5 mönnum; Formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera,
og meðstjórnendum.
14. grein:
Kjörgengnir til stjórnarstarfa eru allir félagsmenn. Æskilegt er að frambjóðendur í stöðu gjaldkera, formanns og varaformanns hafa átt að minnsta kosti eins árs samfellda búsetu í Stóra-Bretlandi.
15. grein:
Formaður félagsins stýrir fundum þess. Hann kallar saman stjórarfundi, þegar honum þykir við þurfa. Auk þess er honum skylt að boða til stjórnarfunda, ef aðrir stjórnarmenn óska þess. Í fjarveru formanns gegnir varaformaður störfum hans.
16. grein:
Í sérstaka gerðarbók skal ritari félagsins skrá skýrslu um alla félagsfundi og bóka fundarsamþykktir. Fundargerðir hvers félagsfundar skulu lesnar upp á næsta fundi og bera undir atkvæði félagsmanna. Skulu þær síðan undirritaðar af fundarstjóra og fundarritara. Einni skal skrá í gerðarbók skýrslur um sjórnarfundi. Útskrifaðar gerðarbækur félagsins skal afhenda Sendiráði Íslands, London, til varðveislu. Ritari annast bréfskriftir félagsins og heldur skrá yfir félagsmenn.
17. grein:
Gjaldkeri annast vörslu fjármuna félagsins, reikningshald og öflun styrkja ásamt öllum stjórnarmönnum.
18. grein:
Endurskoðendur skulu yfirfara bækur félagsins ekki síðar en 14 dögum fyrir aðalfund og gera athugasemdir við allt, sem þeir finna ábótavant í reikningshaldi og réttmæti tekna og gjalda.
19. grein:
Ef einhver stjórnarmaður segir af sér milli aðalfunda, er stjórninni heimilt að fela öðrum stjórnarmanni að annast störf hans. Ef fleiri en einn stjórnarmanna segir af sér milli aðalfunda, er stjórninni heimilt að fela einum fullgildum félagsmanni að taka sæti í stjórninni til næsta félagsfundar. Enginn stjórnarmeðlimur skal gegna sama starfi innan stjórnarinnar lengur en fimm kjörtímabil samfleytt. Að þeim tíma liðnum er þó heimilt að endurkjósa sama stjórnarmann en þó til annarra stjórnarstarfa en hann gengdi áður.
5. kafli UM REGLUBREYTINGAR
20. grein:
Reglum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi. Skulu tillögur til reglubreytingar fylgja fundarboði. Hægt er að bera reglubreytingar í heild sinni undir atkvæði og þarf einfaldan meirihluta til samþykkis, sjá þó 21.grein.
6. kafli FÉLAGSSLIT OG RÁÐSTÖFUN FJÁRMUNA FÉLAGSINS
21. grein:
Nú þykir af einhverjum ástæðum rétt að slíta félaginu. Skal þá boða til félagsfundar og greina frá ástæðum til félagsslita í fundarboði. Til þess að félagsslit verði lögmæt þarf saþykki 3/4 hluta félagsmanna, og skulu a.m.k. 1/3 fullgildra félagsmanna sækja fundinn.
22. grein:
Eigur félagsins og bækur þess skulu afhentar Sendiráði Íslands í London til varðveislu. Ef annað félag, er hefur svipað markmið og Félags Íslendinga á Bretlandseyjum, er stofnað á Bretlandseyjum innan 5 ára frá félagaslitum, skal Sendiráðinu heimilt að afhenda því eigur félagsins.
23. grein:
Að framangreindum fimm árum liðnum skal eigum félagsins ráðstafað af þáverandi Sendiherra Íslands í London á þann hátt, er honum þykir best henta.
Reglur samþykktar á aðalfundir Íslendingafélagsins nóvember 2008.

