Gagnlegar upplýsingar

Heilsugæsla í Bretlandi

Hægt er að finna lista yfir heilsugæslustöðvar, spítala og tannlækna í sínu hverfi á heimasíðu National Health Service með því að slá inn póstnúmer sitt í „Find and choose services“ á :  http://www.nhs.uk/.

Húsnæði

Við bendum á smáauglýsingar á heimasíðu félagsins. Hér eru ágætar vefsíður fyrir þá sem leita sér að húsnæði til að kaupa eða leigja:

Findaproperty.com.   Hér er hægt að finna húsnæði og fasteigna- og leigumiðlanir eftir landsvæðum og  hverfum.

Primelocation.com

Rightmove.co.uk

Íslenskir námsmenn og skólagjöld í Bretlandi

Vinsamlega sjá heimasíðu UK CISA (UK Council for International Student Affairs) vegna upplýsinga um skólagjöld í Englandi, Wales og N-Írlandi.

Fengum eftirfarandi upplýsingar frá SÍNE félaga í Bretlandi:
„Undir vissum skilyrðum geta einstaklingar frá löndum sem eru utan EU en þó innan EEA fengið að sleppa við háu útlendingagjöldin. Með því að námsmaðurinn EÐA maki hans flokkist undir „Migrant worker“ sem þýðir að áður en nám hefst þarf annar hvor að vera í vinnu í Bretlandi EÐA að „leita“ sér að vinnu. Námsmaðurinn myndi þá þurfa að vera í hlutastarfi með námi sem er ótilgreint hversu mikið það þurfi að vera (þess vegna 1 dagur í mánuði!). Þannig náði ég að lækka mín eigin skólagjöld úr rúmlega £15.000 niður í rúm £3.000. Nánar um reglurnar og framkvæmd þessa má finna á vefsíðunni: http://www.ukcosa.org.uk/ ”

Skólar og leikskólar

Sjá upplýsingar hér  á heimasíðu breska ríkisins bæði um leikskóla og skóla. Sjá dálk sem heitir „Choosing a school“ og leiðbeiningar.

Hér eru nánari upplýsingar um leikskólavist í Bretlandi og fjármögnun.

Comments are closed.