Íslenskur fiðluleikari með tónleika í Foundling Museum 14. júlí
Nú er komið að fimmtu tónleikum íslenskra tónlistarmanna í Foundling safninu í London sem munu fara fram þann 14. júlí næstkomandi. Að þessu sinni mun Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari flytja fjölbreytt prógram ásamt Michael Rauter sellista.
Elfa Rún hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábæran fiðluleik frá unga aldri og hefur komið víða við;
Elfa er fædd á Akureyri árið 1985. Hún útskrifaðist af Diplómabraut tónlistardeildar Listaháskóla Íslands vorið 2003 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og Auðar Hafsteinsdóttur. Frá hausti 2003 stundaði Elfa Rún nám við Tónlistarháskólann í Freiburg undir handleiðslu prof. Rainer Kussmaul, en hún lauk námi þaðan í febrúar 2007 með hæstu einkunn. Hún býr nú í Berlín.
Elfa Rún hefur leikið með ýmsum kammersveitum og -hópum síðastliðin ár. Hún er fastur meðlimur Kammersveitarinnar Ísafoldar og Solistenensemble Kaleidoskop í Berlín en hefur einnig leikið með Balthasar Neumann Ensemble, Freiburger Bachorchester, Feldkirch Festivel Orchester og Camerata Stuttart auk fleirri kammerhópa í Þýskalandi. Elfa Rún hefur leikið einleik með ýmsum hljómsveitum og má þar helst nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna, Royal Chamber Orchestra Tokyo og Akademisches Orchester Freiburg.
Elfa Rún hlaut fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach tónlistar-keppninni í Leipzig 2006. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem „bjartasta vonin“ 2006 og var einnig tilnefnd til hvatningarverðlauna Evrópska menningarsjóðsins Pro Europa.
Foundling Museum er staðsett rétt hjá Russell Square neðanjarðarstöðinni í hjarta Lundúnaborgar en safnið segir sögu FoundlingHospital sem stofnaður var af Thomas Coram í þágu heimilislausra barna. Safnið er afar fróðlegt heim að sækja og en auk þess eru reglulega haldnir klassískir tónleikar þar. Tónleikarnir næstkomandi miðvikudag, 14. júlí, hefjast klukkan 13:00 og standa yfir í um það bil klukkustund. Aðgangseyrir er 5 pund (innifalið aðgangur að safni og tónleika) en auk þess er skemmtilegt kaffihús þar sem tilvalið er að fá sér léttan hádegisverð.
Heimasíða safnsins www.foundlingmuseum.org.uk
Linkur á Facebook-viðburð http://www.facebook.com/event.php?eid=109591095759117
