Þorrablót Félags Íslendinga í London verður haldið á The Distillers, 66 West Smithfield, London EC1A 9DY þann 2. mars næstkomandi! Miðasalan er hafin og hægt er að nálgast miða með því að smella HÉR eða með því að smella á “We got tickets” auglýsinguna hægra megin á forsíðu heimasíðunnar.
Hvetjum fólk til að tryggja sér miða sem fyrst. Óskir um sætaskipan sendast á info@ifelag.co.uk eigi síðar en 28. febrúar. Reynt verður að fara eftir sérstökum óskum eftir bestu getu.


