Fyrsta æfing Íslendingakórsins í London verður þriðjudaginn 15.janúar kl.19:00 í Sendiráði Íslands (2A Hans Street, London SW1X 0JE) og allir áhugasamir eru velkomnir (næsta tube: Knightsbrigde). Hringið bjöllunni til að komast inn. Eftir æfinguna skellum við okkur svo á Gloucester, sem er lókal pöbbinn og skálum fyrir nýju starfsári saman. Skemmtileg verkefni eru á döfinni og ber þar helst að nefna ferð á íslenskt kóramót í Lundi, Svíþjóð í apríl. Á síðsta ári hélt kórinn vel heppnaða jólatónleika með Björg Þórhallsdóttur sópran, Braga Jónssyni bassa og Guðnýu Jónasardóttur sellóleikara fyrir fullu húsi. Sjáumst hress.
Kær kveðja,
-Helgi Rafn Ingvarsson, kórstjóri
/p



