FacebookEmail

Jólakveðja

Kæru vinir

Við viljum þakka öllum sem komu á jólaballið síðastliðinn laugardag og fá allir sjálfboðaliðar sérstakar þakkir fyrir aðstoðina. Við vonum að allir hafi skemmt sér vel, jafnt börn sem fullorðnir. Við skemmtum okkur konunglega!

Við viljum einnig vekja athygli á að enn er hægt að kaupa konfekt og annað góðgæti, en allur ágóði af sölunni rennur til starfsemi félagsins. Áhugasamir hafi samband á info‘hjá’ifelag.co.uk eða facebook síðu félagsins. Hér að neðan er listi yfir það sem í boði er ásamt verði:

Nóa Konfekt 1kg – £23
Nóa Konfekt m/mynd 260gr – £13
Lakkrískurl – £2.50
Jólasveinapokar – £2.50
Kúlusúkk – £2
Lakkrísreimar – £2
Risa þristur – £1
Ólsen Ólsen – £0.50

Óskilamunir eftir jólaballið: Það gleymdi einhver að taka með sér góðgætið sem hann/hún keypti. Ef einhver kannast við að hafa gleymt einhverju, getur viðkomandi haft samband við okkur. 


Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

CyberChimps