Jólamessan verður haldin þann 9. desember kl. 15:00 í Sænsku kirkjunni (6 Harcourt Street.). Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson biskup og fyrrverandi sendiráðsprestur mun predika og þjóna fyrir altari. Fermingarfræðsla verður fyrr um daginn, en nánari upplýsingar verða sendar fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra.
Eftir messuna verður haldið jólaball í safnaðarheimilinu þar sem dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinar kíkja í heimsókn.
Að lokum verður kaffihlaðborð og við hvetjum gesti til að koma með bakkelsi og aðrar kræsingar til að setja á hlaðborðið. Hin árlega kökukeppni, sem nýlega fékk íslenska nafnið Fröken Hnallþóra, verður á sínum stað og eru konur, karlar og börn hvött til að taka þátt! Vinsamlega mætið með kökur fyrir kl.15:00.
Miðasala á jólaballið er við innganginn og er aðgangur £5 en ókeypis er fyrir 16 ára og yngri. Athugið að við tökum ekki kort!
Félagið mun hafa til sölu íslenskt jólakonfekt frá Nóa Síríus ásamt öðru íslensku sælgæti.
Þar sem þetta er fjölmenn barnaskemmtun óskar stjórnin enn eftir foreldrum sem og öðrum sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að aðstoða svo allt gangi þrautalaust fyrir sig og börnin (og foreldrar að sjálfsögðu líka!) fari glöð og sátt heim eftir skemmtun dagsins. Vinsamlega hafið samband á info@ifelag.co.uk.
Hlökkum til að sjá sem flesta
Stjórnin og Safnaðarnefndin.


