Archive for October, 2009

Íslendingar troða upp á Café de Paris

19. October, 2009
By Vefstjóri
Íslendingar troða upp á Café de Paris

Hljómsveitin Kat and the Half Step Uncles, sem stofnuð var af Katrínu Ýr Óskarsdóttur, mun troða upp næstkomandi föstudag 23. október á einum elsta skemmtistað Lundúna, Café de Paris, sem opnaður var 1924 við Leicester Square. Katrín er söngkona hljómsveitarinnar en annar Íslendingur, Jónas Elí, er gítarleikari. Húsið opnar kl. 18:30 og er hljómsveitin...
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

Haustlitaganga í Regent’s Park núna á sunnudaginn!

16. October, 2009
By Vefstjóri
Haustlitaganga í Regent’s Park núna á sunnudaginn!

Núna á sunnudag 18. október verður farið í haustlitagöngu um Regent’s Park. Við ætlum að hittast kl. 14:00 við York Gate, sem er sunnan megin í garðinum . Næstu jarðlestarstöðvar eru Baker Street og Regent’s Park. Vinsamlega athugið að Circle og Metropolitan Line eru lokaðar um helgina. Spáin er mjög góð, en það á...
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

Íslendingar – vegabréf – Icelandic passports

12. October, 2009
By Vefstjóri

Sendiráð Íslands í London bað okkur um að koma eftirfarandi á framfæri: Íslendingum, sem þurfa að endurnýja / framlengja vegabréf sín fyrir jólin, er bent á að gera það tímanlega m.a. vegna yfirvofandi póstverkfalls. Sendiráðið vill því hvetja fólk til að sækja um vegabréf með góðum fyrirvara og ekki síðar en 8. desember n.k. Icelanders...
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

The English-Speaking Union Music Scholarships 2010

12. October, 2009
By Vefstjóri

The English-Speaking Union býður ungum tónlistarmönnum, sem eru við nám eða hafa lært í Bretlandi, að sækja um styrk til þess að stunda nám við sumarskóla í Norður-Ameríku og Evrópu. Umsóknarfrestur er til 23. október næstkomandi og má finna upplýsingar um styrkinn og umsóknareyðublöð hér: http://www.esu.org/page.asp?p=1779
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

Næsta guðsþjónusta 11. október

7. October, 2009
By Vefstjóri
Næsta guðsþjónusta 11. október

Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 11. október næstkomandi í sænsku kirkjunni á 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgware Road og Marylebone) klukkan 15:00. Íslenski kórinn í Lundúnum syngur og sunnudagaskólinn er að venju. Að lokinni guðsþjónustu er kirkjukaffi og þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með veitingar á kaffihlaðborðið....
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

Næstu viðburðir hjá Félagi Íslendinga í London

4. October, 2009
By Vefstjóri

Haustlitaganga sunnudaginn 18. október klukkan 14:00 Staðsetning auglýst síðar. Stefnt er að því að hittast í einum af fjölmörgum almenningsgörðum borgarinnar með nesti og njóta þessa fallega hausts. Allir velkomnir, ungir sem aldnir! Fullveldishátíð 1. desember 2009 Félag Íslendinga auglýsir eftir áhugasömu fólki, sem vill taka þátt eða hjálpa við að skipuleggja hátíðina í...
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »

Ný stjórn Félags Íslendinga í London!

4. October, 2009
By fridthjofur

Á aðalfundi félagsins þann 20. september síðastliðinn urðu gagnger stjórnarskipti, en enginn sitjandi stjórnarmeðlimur gaf kost á sér til áframhaldandi setu. Ný stjórn er skipuð sem hér segir: Friðþjófur Þorsteinsson Formaður (formadur@ifelag.co.uk) Sunna Gunnars Marteinsdóttir Ritari (ritari@ifelag.co.uk) Jóhanna Lárusdóttir Koller Gjaldkeri (gjaldkeri@ifelag.co.uk) Kristín Halla Kristinsdóttir Vefstjóri (vefstjori@ifelag.co.uk) Sólveig Jónsdóttir Meðstjórnandi (medstjornandi@ifelag.co.uk) Nýir meðlimir þakka...
Read more »

Posted in Uncategorized | No Comments »